132. löggjafarþing — 20. fundur, 14. nóv. 2005.
Varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur svohljóðandi bréf frá 4. þm. Norðvest., Einari K. Guðfinnssyni, dags. 11. nóvember:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, Guðjón Guðmundsson, Akranesi, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“
Guðjón Guðmundsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.