Jafnréttisfræðsla fyrir ráðherra og stjórnendur opinberra stofnana.
Virðulegi forseti. Ég held að það sé rétt sem hér hefur komið fram, að það er brýnt að ráðherrar fari á jafnréttisnámskeið. Maður heyrir allt of oft að menn telja sig hafa skilning á jafnréttismálum en svo þegar til kastanna kemur vantar ýmislegt þar upp á. Maður heyrir stundum að menn fara að tala um dætur sínar, að menn séu svo góðir við dætur sínar og þá sé allt í lagi. Maður er svolítið hissa á þeirri orðræðu. Ég heyri að hæstv. félagsmálaráðherra hefur í hyggju að halda námskeið fyrir ráðherrana og það er mjög jákvætt.
Varðandi það að efla hlut kvenna í sveitarstjórnum þá er mjög fínt að senda bréf en það þarf svo miklu meira, mikinn sýnileika til að hvetja konur. Ég vona að Jafnréttisstofa hafi svigrúm til að gefa gott trukk í þá baráttu, að efla hlut kvenna í sveitarstjórnum. Þær eru 30%. Það er hneyksli, hvað þetta er lágt. Það er algert hneyksli. Okkur fækkaði í þinginu í síðustu kosningum, niður í 30% á Alþingi. Það er líka hneyksli. Það þarf miklu meira átak.