132. löggjafarþing — 26. fundur,  21. nóv. 2005.

Varamaður tekur þingsæti.

[15:03]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá 1. þm. Norðvest., Sturlu Böðvarssyni, dagsett 17. nóvember 2005:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér, með vísan til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis, að óska þess að 2. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, Adolf H. Berndsen, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Adolf H. Berndsen hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.