132. löggjafarþing — 26. fundur,  21. nóv. 2005.

Vinnutími á blóðskilunardeild LSH.

[15:10]
Hlusta

heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (F):

Virðulegi forseti. Svar mitt í þessu efni var alveg skýrt. Ég tel að afgreiðsla spítalans gefi enga ástæðu til að skera niður þessa lífsnauðsynlegu þjónustu. Ég veit alveg nákvæmlega að þarna er um líf eða dauða að tefla og ég ætlast til að þetta mál verði leyst. Það er einfalt svar af minni hálfu.