132. löggjafarþing — 26. fundur,  21. nóv. 2005.

Sameining rannsóknastofnana iðnaðarins.

[15:20]
Hlusta

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir skýr og greinargóð svör. Það er alltaf ánægjulegt þegar í bígerð er fækkun ríkisstofnana bæði í ljósi þess að möguleg hagræðing geti átt sér stað og ekki síður í ljósi þess að vera kann að samkeppnishæfni slíkra stofnana aukist.

Mér þykir reyndar miður að heyra að ekki sé ætlað að ganga enn lengra og leitast við að reka slíka stofnun undir hlutafélagaforminu.