132. löggjafarþing — 26. fundur,  21. nóv. 2005.

Sameining rannsóknastofnana iðnaðarins.

[15:21]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Mér þykir leitt ef ég veld hv. þingmanni vonbrigðum með þetta en ég tel að það sé ágætis form að reka þessa sameinuðu stofnun sem ríkisstofnun og tel að það sé ekki ástæða til þess að ganga lengra. En ég geri mér grein fyrir því að hv. þingmaður er á annarri skoðun og þannig getur það verið. En ég þakka fyrirspurnina.