132. löggjafarþing — 26. fundur,  21. nóv. 2005.

Eingreiðsla til bótaþega á stofnunum.

[15:24]
Hlusta

heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (F):

Virðulegi forseti. Við í ríkisstjórninni erum að fara yfir útfærslu á þessu máli í samræmi við það samkomulag sem gert hefur verið og höfum m.a. rætt málefni þeirra hópa sem hv. fyrirspyrjandi talar um. Þó útfærslunni sé ekki lokið er óhætt að segja að við munum vinna að þessu máli með sanngjörnum hætti og höfum þennan hóp í huga hvað það snertir.