132. löggjafarþing — 29. fundur, 25. nóv. 2005.
Fjárlög 2006.
1. mál
Frú forseti. Ef það hefur ekki komið skýrt fram í máli mínu áðan þá er ég á þeirri skoðun að koma eigi til móts við öryrkja og aldraða í þessu landi. Mín afstaða til þess að ríkisstjórnin efni þau loforð sem hún gaf öryrkjum á sínum tíma hefur ekkert breyst. Þingmaðurinn á eftir að sjá það í þingsal þegar um þetta verður greitt atkvæði.