132. löggjafarþing — 30. fundur,  25. nóv. 2005.

Ábyrgðasjóður launa.

351. mál
[12:25]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þar sem skoðun hefur farið fram á þessu vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort honum sé kunnugt um að menn hafi aftur og aftur stofnað til nýrra fyrirtækja á þeim tíma sem við vorum hér að ræða um, síðastliðin þrjú ár, hvort menn hafi kannski komið, ekki bara einu sinni heldur tvisvar eða jafnvel þrisvar með rekstur á nýrri kennitölu í nánast sömu atvinnugrein og launþegarnir eigi síðan rétt í sjóðnum.