132. löggjafarþing — 30. fundur, 25. nóv. 2005.
Ábyrgðasjóður launa.
351. mál
Hæstv. forseti. Ég verð bara að játa það fyrir hv. þingmanni að ég þekki ekki nákvæmlega hver staða málsins er í dag. Ég mun ganga eftir því í ráðuneyti mínu og get þá upplýst það við umræðuna í félagsmálanefnd. En eins og ég nefndi áðan þótti mér ástæða til að vekja athygli samráðherra minna sérstaklega á málinu og tek undir með hv. þingmanni að full ástæða er til að samtvinna umfjöllun um þessi mál.