132. löggjafarþing — 32. fundur,  29. nóv. 2005.

Fjáraukalög 2005.

144. mál
[19:50]
Hlusta

Jón Bjarnason (Vg):

Frú forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um að auka framlag til hjálparstarfsins í Kasmír í Pakistan upp í 30 millj. kr., um 11,9 millj. kr. Það er ekki mikið en það er þó litur og ég styð það.