132. löggjafarþing — 36. fundur,  7. des. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[14:25]
Hlusta

Magnús Þór Hafsteinsson (Fl):

Virðulegi forseti. Í stefnu Frjálslynda flokksins segir að tekinn skuli upp gjaldfrjáls leikskóli í áföngum. Við í þingflokki Frjálslyndra höfum hlustað á málflutning Vinstri grænna í þessu máli og hann á alla okkar samúð. Við höfum ákveðið að segja já í þessu máli.