132. löggjafarþing — 39. fundur,  8. des. 2005.

Ársreikningar.

362. mál
[13:06]
Hlusta

Frsm. efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal) (S):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti hv. efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 144/1994, um ársreikninga. Ég ætla ekki að lesa nefndarálitið í hörgul en það kemur fram á þskj. 478. Ég ætla að geta þess eins að nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Hv. þm. Guðmundur Magnússon var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Undir nefndarálitið rita hv. þm. Pétur H. Blöndal, Dagný Jónsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Birgir Ármannsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Ásta Möller, Siv Friðleifsdóttir og Lúðvík Bergvinsson.