132. löggjafarþing — 39. fundur,  8. des. 2005.

Olíugjald og kílómetragjald o.fl.

327. mál
[18:27]
Hlusta

Kjartan Ólafsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við höfum átt nokkurn orðastað um þetta frumvarp í dag og ég hef lýst skoðunum mínum hvað það varðar og hef gert það fyrr þegar við höfum afgreitt frumvarp um olíugjald.

Að orðum hæstv. fjármálaráðherra sögðum um að þetta mál verði tekið upp og skoðað í reynslu sögunnar þá vona ég að það verði með tilliti til þess að það verði skoðað til einföldunar. Því mun ég bæði nú og við 3. umr. greiða atkvæði mitt með frumvarpinu. (MÁ: En Einar Oddur?)