132. löggjafarþing — 39. fundur,  8. des. 2005.

Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.

3. mál
[18:34]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Ég gerði í dag grein fyrir afstöðu okkar í Frjálslynda flokknum. Það er margt í þessari stefnumótun sem við getum samþykkt og höfum lýst yfir stuðningi. Hins vegar er málsmeðferðin nokkuð óvenjuleg eins og hér hefur verið vikið að þar sem ákveðnar fjárveitingar eru markaðar hér með sérstökum lögum langt inn í framtíðina og í ljósi þess munum við sitja hjá við þetta mál.