132. löggjafarþing — 40. fundur,  9. des. 2005.

Húsnæðismál.

343. mál
[15:45]
Hlusta

Frsm. félmn. (Siv Friðleifsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti hv. félagsmálanefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum, á þskj. 493, mál 343.

Nefndin hefur fjallað um málið og fékk á sinn fund gesti.

Með frumvarpinu er gerð tillaga um breytingu á útreikningi rekstrarframlaga til sveitarfélaga vegna hallareksturs í félagslega íbúðakerfinu. Þannig verður framlag reiknað út með hliðsjón af tekjumöguleikum og nýtingu tekjustofna sveitarfélags. Þá er lagt til að rammasamkomulag ríkis og sveitarfélaga verði framlengt um þrjú ár, til og með 2009. Auk þess verði ráðgjafarnefnd varasjóðs húsnæðismála heimilt að ganga á eigið fé varasjóðs viðbótarlána annars vegar í þeim tilgangi að hækka rekstrarframlög til sveitarfélaga sem glíma við hallarekstur á félagslegum íbúðum í þeirra eigu eða félaga sem eru að fullu í eigu þeirra og hins vegar fái sveitarfélög aðstoð við að fækka þessum íbúðum með því að selja þær eða úrelda.

Virðulegur forseti. Hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir, Lúðvík Bergvinsson, Magnús Þór Hafsteinsson og Valdimar L. Friðriksson skrifa undir álitið með fyrirvara.

Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er hann samþykkur áliti þessu, með fyrirvara.

Virðulegur forseti. Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt.