132. löggjafarþing — 46. fundur,  19. jan. 2006.

Rannsókn sjóslysa.

412. mál
[14:50]
Hlusta

samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er rétt ábending hjá hv. þingmanni að við skýrum hér stöðu stofnunarinnar sem slíkrar en áður fyrr og með eldri lögum var þetta óljósara, bæði verksviðið og líka það að formenn rannsóknarnefnda annars vegar og framkvæmdastjóri í því tilviki höfðu aðra stöðu. Ég geri ráð fyrir að með þessum breytingum verði staða forstöðumanns auglýst þannig að það verði í samræmi við lög og þær reglur sem gilda í slíkum tilvikum. Ég hef í rauninni ekki meira um það að segja á þessu stigi.