132. löggjafarþing — 47. fundur,  20. jan. 2006.

Umræða um störf þingsins.

[11:20]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Forseti vekur athygli á því enn og aftur að hér er verið að ræða um fundarstjórn forseta og enn eru tveir hv. þingmenn eftir á mælendaskrá. Forseti telur að það sé nú komin nokkuð góð umræða um það sem gerðist í hv. menntamálanefnd.