132. löggjafarþing — 56. fundur,  1. feb. 2006.

Orkusparandi búnaður í skip Landhelgisgæslunnar.

450. mál
[15:37]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Ásta R. Jóhannesdóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég get líka haft viðbrögð mín stutt. Ég fagna þessu svari hæstv. ráðherra, þakka fyrir það og vona að þetta verði fyrsti vísir að því að við komum þessum búnaði fyrir í sem flestum, ef ekki öllum, skipa okkar.