132. löggjafarþing — 58. fundur,  2. feb. 2006.

Grunnskólar.

447. mál
[15:49]
Hlusta

Dagný Jónsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og tek undir orð hennar. Þetta mál þarf að skoða vel í hv. menntamálanefnd með tilliti til umsagna sem fram koma. Að öðru leyti fagna ég frumvarpinu og sérstaklega þeim áherslum sem komu fram í máli hennar áðan.