132. löggjafarþing — 60. fundur,  7. feb. 2006.

Vextir og verðtrygging.

58. mál
[19:55]
Hlusta

Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu sem ég flyt ásamt hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni, Kristjáni L. Möller, Jóni Gunnarssyni og Einari Má Sigurðarsyni.

Markmið þessa frumvarps er að draga úr kostnaði skuldugra fyrirtækja og heimila vegna óhóflega hárra dráttarvaxta, sem leitt getur til mikilla greiðsluerfiðleika og raunar komið í veg fyrir að einstaklingar og lögaðilar geti komið sér út úr tímabundnum eða langvarandi fjárhagsvanda.

Þegar ákvæðum laga var breytt árið 2001 og heimilað ákveðið frjálsræði í töku dráttarvaxta upp að vissu marki, treysti enginn sér til að hafa skoðun á því hvaða áhrif breytingin hefði á dráttarvaxtatöku. Nokkuð víst má þó telja að aukið frjálsræði í ákvörðun dráttarvaxta gagnaðist mest stórum fyrirtækjum og fjárfestum, sem og betur stæðum einstaklingum, sem eru í góðri aðstöðu til að semja niður dráttarvexti. Dráttarvextir sem Seðlabankinn ákveður eru trúlega í flestum tilvikum notaðir gagnvart þeim sem eru í lakari samningsstöðu eins og smærri fyrirtækjum og einstaklingum með lágar tekjur eða meðaltekjur. Frá júlí 2001, þegar breytingarnar tóku gildi, hafa dráttarvextir lækkað úr 23,50% í 20,50% eða um þrjú prósentustig. Vanefndaálag er í lögum ákveðið ellefu hundraðshlutar en Seðlabankinn hefur þó heimild til að ákveða annað vanefndaálag, að lágmarki sjö hundraðshluta en að hámarki fimmtán hundraðshluta. Vanefndaálag hefur frá júlí 2001 til júlí 2005 verið á bilinu 11–12,60% og er nú 11%. Að undanförnu hafa dráttarvextir hækkað verulega frá því sem þeir voru í ágúst 2003 eða úr 17% í 20,5% í ágúst í fyrra, þegar greinargerð þessa frumvarps var rituð. En nú hafa þeir enn hækkað og eru 21,5%.

Samkvæmt núgildandi lögum eru dráttarvextir myndaðir af grunni dráttarvaxta sem eru nú stýrivextir Seðlabankans. Við það bætist vanefndaálag sem ákveðið er af Seðlabanka. Núgildandi lagaákvæði um dráttarvexti byggjast m.a. á tilskipun Evrópusambandsins 2000/35/EB, um átak gegn greiðsludrætti í verslunarviðskiptum. Athyglisvert er að í þessari tilskipun er einungis kveðið á um lágmark en ekki hámark, en frá 2001 hefur vanefndaálagið hér á landi ekki farið niður fyrir 11%. Þegar bornir eru saman dráttarvextir hérlendis og annars staðar á Norðurlöndum kemur í ljós að vanefndaálagið í Danmörku og Noregi er 7% og í Svíþjóð 8%. Á Íslandi er því vanefndaálag nú 3–5 prósentustigum hærra en í þessum löndum.

Dráttarvextir hér á landi eru 21,5%. Í Danmörku eru þeir 9,15%, í Noregi 9% og í Svíþjóð 9,50%. Dráttarvextir hér á landi, sem ekki er samið um sérstaklega, eru því meira en helmingi hærri hér en í samanburðarlöndunum. Einnig vekur athygli að í dönsku lögunum er kveðið á um að vanefndaálagið sé 7% og í sænsku lögunum 8%. Í þessum löndum er ekki heimild til hærra vanefndaálags og því ekki sett efri mörk líkt og hér á landi.

Ótrúlegur munur er líka á hæstu og lægstu óverðtryggðum vöxtum, en þeir lægstu voru 1. júlí 2005 9,3% og þeir hæstu 17,55%. Þetta er ótrúlegur munur á skuldabréfavöxtum eða 8,25 prósentustig, þar sem viðskiptavinum er raðað í einhvers konar kjörvaxtaflokka eftir mati bankans á greiðsluþoli og ábyrgðum sem lántakendur leggja fram. Samkvæmt upplýsingum Samtaka banka og verðbréfasjóða er ákvörðun um álag á kjörvexti m.a. tekin af viðskiptasögu, öðrum viðskiptum við bankana, tryggingum, greiðslugetu og eignastöðu. Erfitt er að skilja að þetta séu réttlætanleg rök fyrir svo gífurlegum vaxtamun á óverðtryggðum skuldabréfum og raunar óþolandi að þeir sem verr eru settir í þjóðfélaginu skuli þurfa að sæta allt að 8,25 prósentustiga hærri vöxtum en þeir sem betur eru settir.

Ljóst er að á umliðnum árum hafa dráttarvextir vegið þungt í fjárhag skuldugra heimila og iðulega komið í veg fyrir að þau gætu unnið sig út úr fjárhagskröggum, því að dráttarvextirnir skapa ákveðinn vítahring. Þannig hefur fjöldi skuldugra heimila í miklum fjárhagserfiðleikum lent í því að geta ekkert greitt niður af höfuðstól skulda og einungis getað með striti og erfiði greitt niður dráttarvexti, en hlutfall dráttarvaxta af höfuðstól lána er oft gríðarlega hátt.

Með þeirri leið sem lögð er til í frumvarpi þessu er reynt að stilla dráttarvöxtum í hóf en um leið er skapað ákveðið svigrúm til vanefndaálags sem t.d. er ekki að finna í dönskum og sænskum lagaákvæðum um dráttarvexti. Þrátt fyrir þessa breytingu er skoðun flutningsmanna að áfram sé skapaður nægjanlegur hvati til skilvísi, sem stuðlar að lægri fjármagnskostnaði fyrir alla. Með þessari leið er reynt að koma í veg fyrir að dráttarvextir séu svo óhóflegir að tímabundnir greiðsluerfiðleikar hjá einstaklingum eða lögaðilum setji þá sem lenda í vanskilum í óleysanlegan vítahring.

Frá lokum júlí 2004 til loka júní 2005, eða á einu ári, hafa yfirdráttarlán heimilanna hækkað um tæp 25% eða um tæplega 13,5 milljarða kr. Í lok júlí 2004 voru þau um 54,5 milljarðar kr. en ári síðar, í lok júní 2005, voru þau tæpir 68 milljarðar kr. Á þessum tíma hafa vextir af yfirdráttarlánum hækkað um 3,5 en hæstu yfirdráttarvextir eru eins og áður er getið 19,2%. Áætla má, miðað við 17% meðalvexti, að vaxtataka bankanna á 12 mánaða tímabili hafi verið um 10 milljarðar kr. vegna yfirdráttarlána heimilanna.

Í júlí síðastliðnum voru yfirdráttarlán fyrirtækja um 85 milljarðar kr. og má áætla að yfirdráttarvextir af þeim lánum á 12 mánaða tímabili hafi verið um 12 milljarðar kr., en fyrirtæki eru almennt með lægri yfirdráttarvexti en einstaklingar. Líkt og hjá einstaklingum fer það þó eftir áhættu lánveitandans og viðskiptum viðkomandi fyrirtækis við innlánsstofnunina. Bankarnir ákveða sjálfir yfirdráttarvextina og hafa haldið þeim mjög háum. Eðlilegt er að bönkunum verði settar ákveðnar skorður í töku yfirdráttarvaxta, enda svo komið að mikill fjöldi fólks hefur lent í vítahring með fjárhag sinn og er illmögulegt að losna við yfirdráttarlánin vegna mikillar vaxtabyrði. Að meðaltali voru yfirdráttarlán í júní síðastliðnum um 330 þús. kr. á mann, miðað við hvern Íslending á aldrinum 18–80 ára. Ef reiknað er með 19% yfirdráttarvöxtum þarf að greiða um 62 þús. kr. á ári af 330 þús. kr. yfirdráttarláni.

Flutningsmenn þessa frumvarps eru sammála því að samningsfrelsi skuli áfram vera meginregla í gildandi vaxtalögum, en í frumvarpinu er lögð til sama leið og í Danmörku og Svíþjóð, þ.e. að kveðið verði á um í lögum að vanefndaálag dráttarvaxta skuli vera 7% sem er til samræmis við tilskipun Evrópusambandsins 2000/35/EB. Engu að síður er gengið skemur og lagt til að lögfest verði efri mörk sem stillt yrðu við 9% í stað 15% hámarks í núgildandi lögum. Með þessari leið yrði áfram heimild í lögum til að semja um dráttarvexti, sem eins og áður er getið hefur fyrst og fremst gagnast stórfyrirtækjum og betur stæðum einstaklingum. Þessi breyting mundi því fyrst og fremst gagnast smærri skuldsettum fyrirtækjum og skuldugum einstaklingum og fjölskyldum sem minna hafa milli handanna og eru í erfiðri samningsstöðu til að semja um lægri dráttarvexti en Seðlabankinn ákvarðar.

Seðlabanki Íslands birtir ákvörðun um dráttarvexti tvisvar á ári, 1. janúar og 1. júlí. Grunnur dráttarvaxta er gildandi vextir algengustu skammtímalána Seðlabanka Íslands til lánastofnana en við bætist vanefndaálag, sem nú er ákveðið 11 hundraðshlutar nema um annað sé samið og er bankanum heimilt að ákveða það annað eða á bilinu 7–15 hundraðshlutar.

Ákvæði frumvarpsins fela því í sér að heimild bankans til að ákveða vanefndaálag verði þrengd og það miðist almennt við níu hundraðshluta en bankanum verði heimilt að ákveða það lægra eða niður að sjö hundraðshlutum. Lagt er til að lögin öðlist þegar gildi en 2. gr. þeirra komi ekki til framkvæmda fyrr en 1. janúar 2006. Eðli málsins samkvæmt þarf efnahags- og viðskiptanefnd að skoða, þegar hún fær málið til meðferðar, að breyta viðmiði gildistökunnar í 2. gr.

Áætlað er að ákvæðin sem lögð eru til með frumvarpinu geti leitt til þess að dráttarvextir og vextir yfirdráttarlána lækki um tvö prósentustig. Það hefði þau áhrif að vextir af yfirdráttarlánum heimilanna eins og þau voru í júlí síðastliðnum mundu á 12 mánaða tímabili lækka um 1–1,2 milljarða kr. og af lánum fyrirtækja um 1,3–1,5 milljarða kr. Tveggja prósentustiga lækkun dráttarvaxta gæti því skipt sköpum fyrir smærri fyrirtæki og heimili í fjárhagserfiðleikum. Það er meginmarkmiðið með flutningi frumvarpsins.

Ég legg til, virðulegi forseti, að að lokinni þessari umræðu verði frumvarpinu vísað til 2. umr. og efnahags- og viðskiptanefndar.