132. löggjafarþing — 65. fundur,  13. feb. 2006.

Heyrnar-, tal- og sjónstöð.

514. mál
[16:49]
Hlusta

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi aldrei heyrt talað um hagræðingu, hvort hann hafi ekki heyrt talað um net sem veiða betur en önnur net og hvort það megi ekki taka upp nýja stjórnun sem eykur gæði þjónustunnar, eykur magn hennar án þess að hún kosti meira.