132. löggjafarþing — 70. fundur,  20. feb. 2006.

Tilkynning um dagskrá.

[15:02]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Að lokum fyrirspurnum til ráðherra fer fram umræða utan dagskrár um áætlanir og aðgerðir um varnir gegn fuglaflensu. Málshefjandi er hv. þm. Jón Bjarnason. Hæstv. heilbrigðisráðherra verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.