132. löggjafarþing — 74. fundur,  23. feb. 2006.

Fjármálaeftirlit.

556. mál
[16:07]
Hlusta

viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það kemur fram í máli hv. þingmanns að hann treystir Fjármálaeftirlitinu ekki. En það vill svo til að ég treysti Fjármálaeftirlitinu og veit að það vinnur vel og skoðar þau mál sem það telur ástæðu til að skoða. Það er aðalatriðið í mínum huga. Ef hv. þingmaður treystir mér betur þá er það að sjálfsögðu ánægjulegt fyrir mig. En ég hins vegar treysti Fjármálaeftirlitinu fullkomlega til að taka þessar ákvarðanir sjálft.