132. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2006.

Þingsköp Alþingis.

225. mál
[17:48]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Sannast sagna er ég ekki alveg búinn að hugsa þetta í þaula og að hluta til kann ég að hafa misskilið hvað vakir fyrir hv. þingmanni en misskilningur minn hefur þá verið leiðréttur. Ég er fylgjandi opinni umræðu um stjórnsýsluna almennt, þar á meðal um stjórnsýslu sem heyrir undir Alþingi, og lýsi því enn og aftur að ég er fylgjandi þeirri hugsun sem þetta frumvarp byggist á.