132. löggjafarþing — 76. fundur,  3. mars 2006.

Uppbygging héraðsvega.

310. mál
[16:26]
Hlusta

Pétur Bjarnason (Fl) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessar upplýsingar og samgleðst yfir stofnun nýbýla í kjördæmi þingmannsins. Því miður er ekki hægt að segja hið sama um það kjördæmi sem ég stend fyrir. Nýbýli eru afskaplega fá á því svæði. (DrH: Á Vesturlandi.) Hugsanlega einhver á Vesturlandi, en ef litið er yfir svæðið í heild eru nýbýli ekki mörg.

Ég tek fyllilega undir að í slíkan kostnað er, held ég, gott og ljúft og skylt að leggja þegar nýbýli eru stofnuð. Ég tek undir með hv. þingmanni að það er ánægjuefni.