132. löggjafarþing — 81. fundur,  9. mars 2006.

Vestnorræna ráðið 2005.

577. mál
[16:27]
Hlusta

Halldór Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Vegna fyrirspurnar hv. þingmanns hygg ég að ekki sé um formlegan samning um flugsamgöngur að tefla á milli landanna. Á hinn bóginn styður íslenska ríkisstjórnin Flugfélag Íslands til að fljúga til Narsarsuaq.