132. löggjafarþing — 84. fundur,  13. mars 2006.

Vatnalög.

268. mál
[19:52]
Hlusta

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill geta þess í tilefni af þessari fyrirspurn hv. þingmanns að þetta er athyglisverð spurning sem forseti mun að sjálfsögðu leita svara við. Ég hygg að þingsköpin svari því ekki samkvæmt orðanna hljóðan þannig að áður en forseti gefur út úrskurð um þetta vill forseti fá örlítið ráðrúm til að íhuga svarið.