132. löggjafarþing — 86. fundur,  15. mars 2006.

Vatnalög.

268. mál
[21:01]
Hlusta

Kristján L. Möller (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef aðeins eina spurningu til hv. þingmanns. Ég spyr hvort hv. þm. Jónína Bjartmarz sé sammála því eða jákvæð eða neikvæð gagnvart því að festa eignarréttinn á vatninu í landinu í stjórnarskrá lýðveldisins.