132. löggjafarþing — 87. fundur,  16. mars 2006.

Vatnalög.

268. mál
[11:19]
Hlusta

Forseti (Jónína Bjartmarz):

Forseti vill að gefnu tilefni benda á að reglan hefur verið sú að þeir sem vilja gera grein fyrir atkvæði sínu geri það áður en sá fyrsti sem gerir grein fyrir atkvæði sínu tekur til máls. Þessi réttur samkvæmt þingsköpum er ekki ætlaður til að bregðast við orðum annarra við atkvæðagreiðslur.