132. löggjafarþing — 89. fundur,  20. mars 2006.

Varamaður tekur þingsæti.

[15:03]
Hlusta

Forseti (Jónína Bjartmarz):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá 4. þm. Norðvest., Einari K. Guðfinnssyni, dags. 20. mars:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 2. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, Adolf H. Berndsen, Skagaströnd, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum en 1. varamaður á listanum er staddur erlendis.“

Eins og fram kom í síðustu viku í bréfi frá 1. varamanni Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, Guðjóni Guðmundssyni, er hann staddur erlendis og getur því ekki tekið sæti á Alþingi að þessu sinni.

Adolf Berndsen hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný á Alþingi.