132. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2006.

Tilkynning um dagskrá.

[13:33]
Hlusta

Forseti (Jónína Bjartmarz):

Að lokinni rannsókn kjörbréfs og atkvæðagreiðslu um 3.–7. dagskrármál fer fram umræða utan dagskrár um stöðu efnahagsmála. Málshefjandi er hv. þm. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hæstv. forsætisráðherra verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.