132. löggjafarþing — 90. fundur,  21. mars 2006.

Þjóðskrá og almannaskráning.

566. mál
[14:19]
Hlusta

forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Á vegum dómsmálaráðuneytisins starfa sýslumannsembætti víðs vegar um landið og dómsmálaráðuneytið hefur leitast við á undanförnum mánuðum og árum að færa verkefni til sýslumannsembættanna til þess að styrkja þau. Þetta liggur fyrir. Með því að þetta mál fer til dómsmálaráðuneytisins er á margan hátt miklu auðveldara að fara yfir það og ég er viss um að dómsmálaráðuneytið mun fara eins að í mörgum öðrum málum.