132. löggjafarþing — 93. fundur,  27. mars 2006.

Stofnun hlutafélags um Rafmagnsveitur ríkisins.

392. mál
[21:52]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Á fundi með formönnum þingflokka fyrr í dag lýsti forseti þingsins yfir þeim ásetningi sínum að hér yrði kvöldfundur. Ekki voru nefndar neinar tímasetningar í því efni en lögð áhersla á að fundað yrði í kvöld. Nú leikur mér forvitni á að vita hvað kvöldið er langt hér á bæ á þessum herrans degi, og hvort eitthvað hafi verið ákveðið um það af hálfu forseta þingsins og stjórnar þingsins hve lengi þessum þingfundi verði haldið áfram. Það er mjög mikilvægt að við sem tökum þátt í umræðunni fáum upplýsingar um það.