132. löggjafarþing — 94. fundur,  28. mars 2006.

Þjóðlendur.

630. mál
[18:27]
Hlusta

Frsm. allshn. (Birgir Ármannsson) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti hv. allsherjarnefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998, með síðari breytingum. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Þórhall Vilhjálmsson frá forsætisráðuneyti.

Með frumvarpinu eru lagðar til tvær breytingar. Annars vegar að afnema þau ákvæði laganna formaður óbyggðanefndar skuli vera í fullu starfi sem framkvæmdastjóri nefndarinnar og hafa sömu lögkjör og dómstjórinn í Reykjavík. Hins vegar er lagt til að óbyggðanefnd ljúki störfum á árinu 2011 en ekki fyrir árið 2007, eins og ákvæðið er núna.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt. Kolbrún Halldórsdóttir sat fundinn sem áheyrnarfulltrúi og er samþykk áliti þessu. Björgvin G. Sigurðsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en undir nefndarálitið rita allir aðrir nefndarmenn í hv. allsherjarnefnd, Bjarni Benediktsson, Birgir Ármannsson, Sigurður Kári Kristjánsson, Kjartan Ólafsson, Jónína Bjartmarz, Ágúst Ólafur Ágústsson, Sigurjón Þórðarson og Guðrún Ögmundsdóttir.