132. löggjafarþing — 95. fundur,  29. mars 2006.

Ummæli samgönguráðherra í fyrirspurn.

[12:20]
Hlusta

Drífa Hjartardóttir (S):

Hæstv. forseti. Ég kvaddi mér hljóðs þegar hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson hóf hér efnislega umræðu. Ég styð fullkomlega þær athugasemdir sem forseti gerði hér áðan. Hér á ekki að ræða um efnisleg atriði heldur aðeins um fundarstjórn forseta.