132. löggjafarþing — 98. fundur,  3. apr. 2006.

Stjórn fiskveiða.

353. mál
[16:22]
Hlusta

Frsm. sjútvn. (Guðjón Hjörleifsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hélt að nefndarmenn hefðu fengið excel-skjal þar við tókum öll skipin sem voru í þessu kerfi og breytinguna þar sem við útlistuðum hvað menn mundu fá miðað við eitt til sjö ár og miðað við grunninn. Ég taldi að menn hefðu fengið það skjal og getað séð þetta. Ég skal bara útvega hv. þingmanni það mjög snaggaralega á eftir.