132. löggjafarþing — 100. fundur,  5. apr. 2006.

Form fyrirspurnar.

[15:25]
Hlusta

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S):

Herra forseti. Það breytir engu um eðli málsins þótt orðið Baugur sé tekið út úr fyrirspurninni. (Gripið fram í.) Eftir að fyrirspurnin liggur fyrir á þennan hátt þá breytir það nákvæmlega engu og tilgangurinn er sá hinn sami hjá hv. fyrirspyrjanda. Svarið verður að sjálfsögðu það sama.