132. löggjafarþing — 102. fundur,  10. apr. 2006.

Skráning losunar gróðurhúsalofttegunda.

713. mál
[22:25]
Hlusta

umhverfisráðherra (Sigríður A. Þórðardóttir) (S) (andsvar):

Frú forseti. Hér er um að ræða mjög tæknileg mál. Ég hef ekki á reiðum höndum svör við því hvaða fyrirtæki mundu falla undir 30 þús. tonna ákvæðið. En ég tel að það sé einmitt nokkuð sem umhverfisnefnd hlýtur að kalla eftir svörum við.