132. löggjafarþing — 102. fundur,  11. apr. 2006.

Skráning losunar gróðurhúsalofttegunda.

713. mál
[00:28]
Hlusta

umhverfisráðherra (Sigríður A. Þórðardóttir) (S) (andsvar):

Frú forseti. Margnefnd nefnd, sem ég hef greint frá að sé að störfum, mun einmitt skoða þessi mál og hvort rétt sé að festa í lög heimildir til að krefja fyrirtækin um mótvægisaðgerðir, t.d. þá líka að útvega losunarheimildir ef þess gerist þörf.