132. löggjafarþing — 102. fundur,  11. apr. 2006.

Skráning losunar gróðurhúsalofttegunda.

713. mál
[00:30]
Hlusta

umhverfisráðherra (Sigríður A. Þórðardóttir) (S) (andsvar):

Frú forseti. Mér finnst með ólíkindum að heyra hv. þingmann tala á þennan hátt niður til kollega síns hér sem ég tel að hann hafi gert með því að segja að ráðherra eigi ekki að svara á þennan veg. Ég áskil mér rétt til þess að svara þeim spurningum sem til mín er beint með þeim hætti sem ég kýs sjálf.

Það er einfaldlega þannig að það er enn þá verið að skoða þessi mál og hvernig best sé að koma þeim fyrir. Hv. þm. Mörður Árnason verður að sætta sig við að ég svara þessu ekki öðruvísi að þessu sinni.