132. löggjafarþing — 105. fundur,  21. apr. 2006.

Dagskrá fundarins.

[11:12]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Forseti hefur lagt sig fram um að hafa samráð og funda reglulega með formönnum þingflokka. Það hefur hins vegar ekki náðst samstaða um hvernig ljúka beri umræðu um málið sem er núna á dagskrá. Það er ekkert óeðlilegt við að boða til fundar með þingflokksformönnum í hádegishléi. Það hefur margoft verið gert áður.