breyting á II. viðauka við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá utanríkismálanefnd um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 31/2005, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ólöfu Hrefnu Kristjánsdóttur frá utanríkisráðuneyti og Gísla Friðgeirsson frá Neytendastofu.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 31/2005, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um mælitæki.
Tilskipunin gerir ráð fyrir að settar verði ítarlegar reglur um mælitæki, þar á meðal um framleiðslu, markaðssetningu og áreiðanleika auk reglna um prófanir, vottanir og eftirlit með slíkum tækjum. Ákvörðun þessi kallar á lagabreytingar hér á landi og hefur viðskiptaráðherra lagt fram frumvarp til laga um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn sem nú er til meðferðar í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn Halldór Blöndal, Össur Skarphéðinsson, Drífa Hjartardóttir, Jón Gunnarsson og Bjarni Benediktsson.