132. löggjafarþing — 119. fundur,  1. júní 2006.

breyting á IV. viðauka við EES-samninginn.

686. mál
[11:56]
Hlusta

Frsm. utanrmn. (Drífa Hjartardóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá utanríkismálanefnd um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 102/2005, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ólöfu Hrefnu Kristjánsdóttur frá utanríkisráðuneyti.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 102/2005 frá 8. júlí 2005, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins frá 27. september 2001 um að auka framleiðslu rafmagns með endurnýjanlegum orkugjöfum til notkunar á innri raforkumarkaði.

Markmið gerðarinnar er að hvetja til frekari notkunar á raforku sem framleidd er með endurnýjanlegum orkugjöfum og er gert ráð fyrir að EES-ríkin setji sér markmið um að auka slíka raforkuframleiðslu.

Innleiðing gerðarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn Halldór Blöndal, Össur Skarphéðinsson, Drífa Hjartardóttir, Jón Gunnarsson og Bjarni Benediktsson.