132. löggjafarþing — 119. fundur,  1. júní 2006.

Norðurlandasamningur um almannaskráningu.

609. mál
[12:03]
Hlusta

Frsm. utanrmn. (Drífa Hjartardóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá utanríkismálanefnd um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu Norðurlandasamnings um almannaskráningu.

Nefndin hefur fjallað um málið.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta samning milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um almannaskráningu sem gerður var í Stokkhólmi 1. nóvember 2004.

Meginmarkmið hins nýja Norðurlandasamnings um almannaskráningu er að einfalda ferlið við flutninga fólks milli ríkja á Norðurlöndunum svo fólk geti fyrr notið réttinda og borið skyldur í nýja búsetulandinu. Gert er ráð fyrir því að tekin verði upp rafræn samskipti og hið svokallaða samnorræna flutningsvottorð lagt niður í núverandi mynd.

Fullgilding samnings þessa kallar á lagabreytingar hér á landi og hefur dómsmálaráðherra þegar lagt fram lagafrumvarp þar að lútandi.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Að þessu nefndaráliti standa hv. þingmenn Halldór Blöndal, Össur Skarphéðinsson, Drífa Hjartardóttir, Jón Gunnarsson og Bjarni Benediktsson.