132. löggjafarþing — 119. fundur,  1. júní 2006.

lokafjárlög 2004.

575. mál
[12:16]
Hlusta

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Magnús Stefánsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til lokafjárlaga fyrir árið 2004 frá 1. minni hluta fjárlaganefndar. Ég tel rétt að skýra það, virðulegur forseti, af hverju þetta heitir 1. minni hluti þrátt fyrir að nefndarálitið sé borið upp af meiri hluta fjárlaganefndar. Það er einfaldlega vegna þess að í reglum þingsins er kveðið á um að til afgreiðslu meirihlutaálita nefnda þurfi að vera mættur meiri hluti nefndarmanna en að þessu sinni standa að nefndarálitinu fimm þingmenn af sex úr meiri hluta fjárlaganefndar og það er talinn vera 1. minni hluti.

Nefndin hefur haft frumvarpið til athugunar og í því skyni leitað skýringa hjá fjármálaráðuneyti varðandi beiðnir um auknar fjárheimildir. Enn fremur var óskað eftir áliti frá Ríkisendurskoðun.

Breyting skv. 1. gr. frumvarpsins er 1.243,4 millj. kr. vegna frávika ríkistekna frá áætlun fjárlaga ársins 2004 og afgangsheimildir og umframgjöld sem falla niður skv. 2. gr. frumvarpsins nema 13.517,2 millj. kr. 1. minni hluti leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Að nefndarálitinu standa hv. alþingismenn Magnús Stefánsson, Einar Oddur Kristjánsson, Drífa Hjartardóttir, Bjarni Benediktsson og Guðmundur Hallvarðsson.