132. löggjafarþing — 119. fundur,  1. júní 2006.

Lífeyrissjóður bænda.

622. mál
[13:47]
Hlusta

Frsm. efh.- og viðskn. (Pétur H. Blöndal) (S):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 12/1999, um Lífeyrissjóð bænda, með síðari breytingum frá hv. efnahags- og viðskiptanefnd.

Nefndarálitið er að finna á þskj. 1203 og þar er getið um gesti og umsagnir sem bárust nefndinni og einnig lýsing á núverandi frumvarpi.

Með frumvarpinu er lagt til að lagaumhverfi Lífeyrissjóðs bænda verði einfaldað og starfsumhverfi lífeyrissjóðsins gert sem sambærilegast starfsumhverfi annarra lífeyrissjóða. Eins og fram kemur í almennum athugasemdum við frumvarpið þykir rétt að í lögum um Lífeyrissjóð bænda sé einungis tekið á sérstöðu sjóðsins, svo sem sjóðsaðild, iðgjaldsstofni og iðgjaldi bænda, svo og innheimtu þess en hún er með nokkuð öðrum hætti en hjá öðrum lífeyrissjóðum. Gert er ráð fyrir að önnur ákvæði um starfsemi sjóðsins, svo sem réttindaávinnsla og lífeyrisréttindi, verði í samþykktum sjóðsins. Í frumvarpinu er ekki um að ræða neinar efnislegar breytingar á lögum um Lífeyrissjóð bænda aðrar en þær að ákvæði um lífeyrisréttindi vegna áunninna réttinda verði felld niður til þess að unnt verði að samræma þau lífeyrisréttindaákvæðum hjá öðrum lífeyrissjóðum.

Í g-lið 1. gr. frumvarpsins kemur fram að setja skuli nánari reglur um skipulag sjóðsins og starfsemi auk ákvæða um iðgjald, mótframlag og lífeyrisréttindi í samþykktir sem fjármálaráðherra staðfestir að fenginni umsögn Fjármálaeftirlitsins. Í umsögn Fjármálaeftirlitsins er lagt til að í umræddri grein verði einnig tekið fram að komi til breytinga á samþykktum sjóðsins skuli fjármálaráðherra staðfesta þær að nýju að fenginni umsögn Fjármálaeftirlitsins. Nefndin fellst á þessa tillögu og leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

Á eftir fyrri málslið g-liðar 1. gr. komi nýr málsliður, svohljóðandi: Komi til breytinga á samþykktum sjóðsins skal fjármálaráðherra staðfesta þær að nýju að fenginni umsögn Fjármálaeftirlitsins.

Hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn Pétur H. Blöndal, Magnús Stefánsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Dagný Jónsdóttir, Birgir Ármannsson, Ásta Möller, Ögmundur Jónasson og Lúðvík Bergvinsson.