132. löggjafarþing — 119. fundur,  1. júní 2006.

afréttamálefni, fjallskil o.fl.

210. mál
[15:33]
Hlusta

Frsm. landbn. (Drífa Hjartardóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá landbúnaðarnefnd um frumvarp til laga um breytingu á lögum um afréttamálefni, fjallskil o.fl., nr. 6/1986, með síðari breytingum.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið jákvæðar umsagnir um það frá Bændasamtökum Íslands og Landssambandi kúabænda.

Með frumvarpinu er lagt til að innlausnarfrestur verði fjórar vikur við nauðungarsölu óskilapenings, svo sem hrossa og nautgripa, í stað tólf vikna innlausnarfrests eins og nú er áskilið. Eigendum hrossa og nautgripa er nú gert skylt að örmerkja eða frostmerkja hross, samanber reglugerð nr. 289/2005, um merkingar búfjár, og telur nefndin því tímabært að innlausnarfresturinn verði styttur í fjórar vikur eins og mælt er fyrir um í frumvarpinu.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt.

Anna Kristín Gunnarsdóttir, Gunnar Örlygsson og Margrét Frímannsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir þetta nefndarálit rita hv. þingmenn Drífa Hjartardóttir, Magnús Stefánsson, Guðmundur Hallvarðsson, Jón Bjarnason, Guðjón Ólafur Jónsson og Valdimar L. Friðriksson.