132. löggjafarþing — 122. fundur,  3. júní 2006.

veiting ríkisborgararéttar.

809. mál
[11:31]
Hlusta

Frsm. allshn. (Jónína Bjartmarz) (F):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga frá hv. allsherjarnefnd um veitingu ríkisborgararéttar þar sem í 1. gr. þess eru taldir upp þeir 18 einstaklingar sem frumvarpið leggur til að öðlist íslenskan ríkisborgararétt.