132. löggjafarþing — 125. fundur,  3. júní 2006.

þingfrestun.

[16:26]
Hlusta

forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F):

„Handhafar valds forseta Íslands gjöra kunnugt:

Að vér, að tilskildu samþykki Alþingis, veitum forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 132. löggjafarþings, frá 3. júní 2006, eða síðar ef nauðsyn krefur, til septemberloka.

Gjört í Reykjavík, 2. júní 2006.

Halldór Ásgrímsson, Rannveig Guðmundsdóttir,

Gunnlaugur Claessen.

________________

Halldór Ásgrímsson.

 

Bréf handahafa valds forseta Íslands um frestun á fundum Alþingis.“

 

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 132. löggjafarþings, er frestað.

Ég óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum, gleðilegrar hvítasunnuhátíðar og allra heilla í framtíðinni.